Vesturland og Vestfirðir
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins heldur hringferð sinni áfram dagana 20. – 22. apríl. Farið verður í vinnustaðaheimsóknir og fundað með sveitarstjórnarfólki á Akranesi, í Dalabyggð og á Vestfjörðum, auk þess sem haldnir verða opnir fundir, dagana 20. – 22. apríl.
Hægt er að fylgjast með hringferðinni á samfélagsmiðlum Sjálfstæðisflokksins meðan á henni stendur og á xd.is.
FIMMTUDAGURINN 20. APRÍL – SUMARDAGURINN FYRSTI
Fimmtudaginn 20. apríl fer þingflokkurinn á Akranes, Dalabyggð og endar á Patreksfirði
Kl. 12:00 verður Sumarkaffi á Kaffi Kaju á Akranesi. Öll velkomin.
Kl. 19:30 verður opinn kaffifundur í félagsheimilinu á Patreksfirði. Öll velkomin.
FÖSTUDAGURINN 21. APRÍL
Föstudaginn 21. apríl fer þingflokkurinn frá Patreksfirði á Tálknafjörð, Bíldudal, Flateyri, Ísafjörð og í Bolungarvík.
Kl. 17:00 verður opinn fundur á Verbúðinni í Bolungarvík. Öll velkomin.
LAUGARDAGURINN 22. APRÍL
Laugardaginn 22. apríl mun þingflokkurinn heimsækja vinnustaði í Súðavík og Hólmavík.
Ferðin er hluti af fimmtu hringferð þingflokksins sem hófst í febrúar 2019 þar sem þingflokkurinn heimsækir flest byggðarlög á landinu vítt og breitt. Í febrúar á þessu ári fór þingflokkurinn hringinn í kringum landið að meðtöldu Snæfellsnesi. Síðar á árinu mun þingflokkurinn heimsækja Vestmannaeyjar og höfuðborgarsvæðið.