Ríkið á­kveði ekki aðild barna að trú­fé­lögum
'}}

Hildur Sverrisdóttir alþingismaður:

Trú og lífsskoðanir eru ein mikilvægustu einkamál hvers og eins í lífshlaupinu. Trúna er eðli málsins samkvæmt hvorki hægt að taka af manneskjunni né þröngva upp á hana. Trúfrelsið er eitt af mikilvægum mannréttindum sem Íslendingar búa við. Trú- og lífsskoðunarfélög á Íslandi telja marga tugi. Réttur fólks til að tilheyra einhverju þeirra, eða ekki, er óskoraður.

Það að trúa tilheyrir þó engum öðrum en einstaklingnum og það er mikilvægt að þátttaka í trúfélagi sé að meðvituðu frumkvæði hans sjálfs. Þetta er auðvitað persónulegt mál en því til viðbótar er hins vegar að rétturinn til að standa utan félaga er stjórnarskrárvarinn og ekki síður mikilvægur en trúfrelsið.

Í vikunni lagði ég fram ásamt nokkrum ágætum þingmönnum frumvarp sem felur í sér breytingar á skráningum í trúfélög. Breytingarnar miða einkum að því að verja börn gagnvart því að ríkið sjálfkrafa skrái þau í trúfélög foreldra án undangengins samþykkis þeirra sjálfra eða foreldranna.

Núverandi lög fara gegn félagafrelsinu

Sjálfkrafa skráning ríkisins í trúfélög fer illa að félagafrelsinu og gengur því breytingin út á að skráning í trúfélag verði eingöngu gerð af foreldrum eða forráðamönnum sem fara með persónulega hagi þess en ríkisvaldið hafi ekki frumkvæði að ákvörðun um félagsaðild barna, hvorki með sjálfkrafa skráningu né öðrum leiðum.

Einnig er í frumvarpinu kveðið á um þá breytingu að 12 ára börnum er veittheimild til að ákveða félagsaðild sína í trúfélagi í stað 16 ára eins og kveðið er á um í dag.Í núgildandi lögum er gert ráð fyrir því að 12 ára gamalt barn hafi nægilegan þroska til að hafa skoðun á því í hvaða trú- eða lífsskoðunarfélag það er skráð – og því eðlilegt að réttur barnsins til skráningar fylgi þá með og sé ekki þrengri en nauðsynlegt er.

Þá er í frumvarpi mínu einnig að finna breytingu á núgildandi lögum sem afnemur ákvæði um að við úrsögn úr skráðu trúfélagi skuli beina beiðni um úrsögn til forstöðumanns þess félags sem í hlut á. Sú framkvæmd er augljóslega vond þar sem úrsögn getur verið persónulegt og erfitt mál og tengist jafnvel persónulegri reynslu eða samskiptum innan trúfélagsins.

Grundvallaratriði að fólk velji trú sína

Frumvarpið snýst í grunninn um að lögin endurspegli almenn réttindi og frelsi einstaklingsins, í þessu tilfelli félagafrelsi og að ríkisvaldið taki ekki ákvarðanir fyrir einstaklinginn að óþörfu. Frumvarpið hefur engin bein áhrif á tekjustofna trúfélaga þar sem fé fylgir ekki skráðum einstaklingum í trúfélög fyrr en við 16 ára aldur. Því er ekki beint á nokkurn hátt gegn Þjóðkirkjunni, öðrum trúfélögum eða trú almennt. Trú- og lífsskoðunarfélög leika gríðarlega mikilvæg hlutverk í samfélaginu hjá þeim sem þau aðhyllast og munu áfram gera. Markmið frumvarpsins er fyrst og fremst að koma í veg fyrir að ríkisvaldið hlutist til um í hvaða trú- eða lífskoðunarfélögum fólk er í án skýrrar afstöðu þess sjálfs þar sem grundvallaratriði er að trú er nokkuð sem fólk finnur hjá sjálfu sér og velur að verða hluti af.

Greinin birtist á visir.is 25. janúar 2023.