Yfir milljarði úthlutað til aukins samstarfs háskóla
'}}

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að úthluta yfir milljarði króna til aukins samstarfs háskóla með það að markmiði að auka gæði náms og samkeppnishæfni.

Hugmyndin var kynnt í haust og brugðust allir 7 háskólarnir við ásamt 37 öðrum samstarfsaðilum. 48 umsóknir bárust og sótt var um styrki fyrir samtals 2,8 milljarða króna. Upphaflega var ætlunin að úthluta allt að milljarði króna en vegna gæða umsóknanna og mats á líklegum árangri þeirra var ákveðið að úthluta tæplega 1,2 milljörðum.

Verkefnið er þegar fjármagnað af safnlið háskólastigsins en með því að ráðstafa framlögum af safnliðnum í gegnum Samstarfið verður fjármögnun á háskólastigi gagnsærri en áður.

Að sögn Áslaugar Örnu fór áhugi háskólanna fram úr hennar björtustu vonum. „Um leið og hugmyndin var kynnt fór af stað mikið samtal á milli allra háskólanna sem skilaði sér ekki einungis í miklum fjölda umsókna heldur eru gæði verkefnanna slík að ég trúi því að þau geti haft mikil og jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Umsóknirnar sýna að með Samstarfi háskóla erum við að leysa úr læðingi krafta og hugmyndir sem hafa verið í gerjun um langt árabil en geta nú loks orðið að veruleika.“

Ráðherra fagnar því að skólarnir eigi nú mikilvægt frumkvæði að því að koma á fót spennandi námsbrautum sem mæta þörfum nýrra tíma.

„Fjölmargar nýjar námsbrautir verða settar á laggir, klínískt heilbrigðisnám verður eflt verulega, aukin áhersla verður á hinar svokölluðu STEAM greinar, íslenskunám verður eflt og svo nefni ég að skólarnir munu stórauka fjarnám sem á að nýtast fólki um allt land," segir Áslaug Arna.

Sjá nánar hér á frétt Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.