Upp­rætum kyn­ferðis­of­beldi og kyn­bundið of­beldi

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra:

Kynferðisofbeldi og kynbundið ofbeldi eru vágestir í íslensku samfélagi og verður að taka alvöru tökum. Því var það eitt af mínum fyrstu verkum sem dómsmálaráðherra að fela ríkislögreglustjóra að leiða markvissar aðgerðir um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi.

Hrundið var af stað herferð í samvinnu Neyðarlínunnar, lögreglunnar, ráðuneytisins og fjölda góðra samstarfsaðila þar sem almenningur var hvattur til að vera vakandi gegn kynferðisofbeldi á djamminu og spyrja „Er ekki allt í góðu?“, og ef ekki að hafa þá samband við 112. Herferðin náði til yfir 200.000 manns í gegnum samfélagsmiðla og innlenda miðla og þúsundir hafa heimsótt ofbeldisgátt 112 í tengslum við herferðina.

Fjölgum tilkynningum, fækkum brotum

Markmið mitt með vitundarvakningunni er að fjölga tilkynningum og fækka brotum, þar sem kannanir benda til þess að lítill hluti kynferðisbrota sé tilkynntur til lögreglunnar. Á fyrstu þremur mánuðum ársins bárust 176 tilkynningar til lögreglunnar um kynferðisbrot, sem eru 6% fleiri en að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú árin þar á undan. Þar af var tilkynnt um 59 nauðganir eða sem samsvarar 17% fjölgun frá meðaltali síðustu þriggja ára. Skoðun á tímasetningu brotanna sýnir að grófasta ofbeldið á sér oft stað um helgar og að nóttu til, tengt skemmtanalífinu.

Herferðin hefur því haldið áfram í sumar með áherslur á viðburði og útihátíðir hringinn í kringum landið með skilaboðunum um „Góða skemmtun“, þar sem allir koma heilir heim. Með átakinu viljum við hvetja til samstöðu gegn ofbeldi þar sem fólk kemur saman til að skemmta sér í sumar og minna á að ætíð er hægt að leita aðstoðar hjá Neyðarlínunni í síma 112, á vefnum 112.is eða í 112 appinu. Þróað hefur verið fræðsluefni fyrir starfsfólk og gæsluliða til að fást við ágreining, áreitni eða ofbeldi í uppsiglingu og má nálgast efnið á https://www.112.is/goda-skemmtun.

Nú þegar margir leggja land undir fót um verslunarmannahelgina vil ég hvetja hvern og einn til að leggja áherslu á góða skemmtun. Þannig snúum við vonandi öll heil heim að skemmtun lokinni.

Bætt réttarstaða brotaþola lögfest

Lengi hafði verið kallað eftir mikilvægum réttarbótum í þágu brotaþola kynferðisofbeldis. Í vor lagði ég því mikla áherslu á að Alþingi samþykkti frumvarp mitt um bætta réttarstöðu brotaþola fyrir þinglok. Frumvarpið hafði tekið vegamiklum breytingum frá fyrra þingmáli að höfðu víðtæku samráði. Var málið samþykkt samhljóða áður en þingmenn héldu í sumarfrí.

Aukið stafrænt kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og ungmennum er mikið áhyggjuefni. Því lagði ég áherslu á aðra mikilvæga réttarbót um breytingar á lögum um barnaníð, hatursorðræðu og mismunun sem var einnig samþykkt á Alþingi í vor. Þar er kveðið á um mun harðari refsingu fyrir þá sem framleiða, dreifa eða eiga myndefni sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni.Sömu refsingar gilda nú um þá sem skoða myndefni á netinu sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni.

Rannsóknir efldar

Samhliða þessu hefur aukið fjármagn verið tryggt til að fjölga rannsakendum kynferðisbrota, ákærendum og tæknimenntuðu starfsfólki lögreglunnar til að hraða og bæta meðferð mála.

Mín kjörorð hafa alltaf verið að láta verkin tala. Svo verður áfram.

Greinin birtist á Vísi, 27. júlí 2022.