Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að 44. landsfundur Sjálfstæðisflokksins fari fram í Laugardalshöll dagana 4. – 6. nóvember nk.
Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð. Hann er stærsta stjórnmálasamkoma á Íslandi og störf hans hafa mikil áhrif, bæði inn í stjórnmálin en einnig út á við til þjóðarinnar.
Seturétt á landsfund eiga flokksráðsfulltrúar flokksins auk þess sem félög og fulltrúaráð kjósa fulltrúa til setu á fundinum.
Til þess að sjá hvort fólk sé í flokksráði (og þar með sjálfkjörið) er farið á mínar síður – Flokkurinn – Núverandi trúnaðarstörf – Flokksráð
Aðrir þeir sem hafa áhuga á að sitja landsfund geta óskað eftir seturétti hér.
Allar upplýsingar um fundinn verða birtar á xd.is um leið og þær liggja fyrir.