Fjármála- og efnahagsráðuneyti braut ekki gegn reglum um opinber innkaup
'}}

Fréttir um að fjármála- og efnahagsráðuneyti hafi brotið gegn reglum um opinber innkaup með kaupum á ráðgjafaþjónustu í tengslum við söluna á Íslandsbanka eiga ekki við rök að styðjast.

Samkvæmt lögum um opinber innkaup falla kaup opinberra aðila á -„fjármálaþjónustu í tengslum við útgáfu, sölu, kaup eða aðilaskipti að verðbréfum eða öðrum sambærilegum fjármálagerningum“ ekki undir útboðsskyldu. Fréttir sem nýlega birtust um að ráðuneytið hafi brotið gegn reglum um opinber innkaup með kaupum á slíkri þjónustu eru því hreinlega rangar.

Þá hafa þeir samningar sem ráðuneytið hefur gert við ráðgjafa í tengslum við sölu eignarhluta í fjármálafyrirtækjum verið innan þeirra fjárhæðarmarka sem leiða af lögum um opinber innkaup. Samtals greiddi ráðuneytið ráðgjöf fyrir frumútboð Íslandsbanka sl. sumar (15,1 m.kr.) samkvæmt sérstökum samningi, og síðan ráðgjöf fyrir útboð til hæfra fjárfesta í mars sl. (5,0 m.kr.), auk skilgreinds útlagðs kostnaðar.

Frekari upplýsingar á vef stjórnarráðsins.