Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur verið valin ein af fimm ungum stjórnmálamönnum ársins af samtökunum One Young World.
Áslaug Arna var í hópi 15 ungra stjórnmálamanna sem tilnefnd var til verðlauna – en af þeim voru fimm valdir.
„Það er hvatning og skemmtileg viðurkenning að vera ein af sigurvegurum One Young World sem hvetur ungt fólk til dáða á ýmsum sviðum,“ segir Áslaug Arna.
Veitt eru verðlaun til ungs stjórnmálafólks sem skarað hefur framúr á aldrinum 18-35 ára. Fólks sem notar þátttöku sína í stjórnmálum til að hafa jákvæð áhrif á annað ungt fólk í samfélaginu og hvetur annað ungt fólk til þátttöku í stjórnmálum.
Stjórnmálaferill Áslaugar Örnu er rakinn í umsögn samtakanna, en hún var 24 ára gömul þegar hún var kjörin ritari Sjálfstæðisflokksins og skipuð dómsmálaráðherra árið 2019, þá sú yngsta sem hafði gegnt því embætti á heimsvísu.
Hægt er að lesa nánar um verðlaunin hér.