Á fundi Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð þann 8. mars sl. var borin upp og samþykkt tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí. Líkt og fyrir fjórum árum er það Lilja Björg Ágústsdóttir forseti sveitarstjórnar sem er í oddvitasæti listans. Nýir frambjóðendur koma í næstu sæti.
Listinn í heild er þannig:
- Lilja Björg Ágústsdóttir, lögmaður og forseti sveitarstjórnar
- Sigurður Guðmundsson, verkefnisstjóri fjármála
- Jóhanna Marín Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Ragnhildur Eva Jónsdóttir, bóndi og lögfræðingur
- Kristján Ágúst Magnsússon, bóndi
- Birgir Heiðar Andrésson, framleiðslustjóri
- Sjöfn Hilmarsdóttir, forstöðumaður
- Valur Vífilsson, fyrirtækjaráðgjafi
- Birgitta Sigþórsdóttir, mannauðsstjóri
- Bjarni Benedikt Gunnarsson, vaktstjóri
- Dóra Erna Ásbjörnsdóttir, bóndi og tónlistakennari
- Bryndís Geirsdóttir, framleiðandi
- Sigurjón Helgason, bóndi
- Arnar Gylfi Jóhannesson, fyrirtækjaráðgjafi
- Silja Eyrún Steingrímsdóttir, skrifstofustjóri
- Sigurður Guðmundsson, framkvæmdarstjóri
- Árni Gunnarsson, heilbrigðisfulltrúi
- Guðrún María Harðardóttir, fv. póstmeistari