Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi var samþykktur á fundi kjördæmisráðsins í Suðvesturkjördæmi í Valhöll þann 8. júlí 2021.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, leiðir listann. Í öðru sæti er Jón Gunnarsson, ritari Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður. Í þriðja sæti er Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður. Í fjórða sæti er Óli Björn Kárason, alþingismaður. Í fimmta sæti er Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari. Í sjötta sæti er Sigþrúður Ármann, framkvæmdastjóri. Í sjöunda sæti er Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi. Laufey Jóhannsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Garðabæ (FEBG), skipar heiðurssæti listans.
Listann í heild má sjá hér að neðan.
1 | Bjarni Benediktsson | fjármálaráðherra |
2 | Jón Gunnarsson | alþingismaður |
3 | Bryndís Haraldsdóttir | alþingismaður |
4 | Óli Björn Kárason | alþingismaður |
5 | Arnar Þór Jónsson | héraðsdómari |
6 | Sigþrúður Ármann | framkvæmdastjóri |
7 | Kristín María Thoroddsen | bæjarfulltrúi |
8 | Guðbjörg Oddný Jónasdóttir | samskiptastjóri |
9 | Bergur Þorri Benjamínsson | formaður Sjálfsbjargar |
10 | Hannes Þórður Þorvaldsson | lyfjafræðingur |
11 | Halla Sigrún Mathiesen | formaður SUS |
12 | Gísli Eyjólfsson | knattspyrnumaður og þroskaþjálfi |
13 | Sigríður Heimisdóttir | iðnhönnuður |
14 | Halla Karí Hjaltested | verkefnastjóri |
15 | Jana Katrín Knútsdóttir | hjúkrunarfræðingur |
16 | Dragoslav Stojanovic | húsvörður |
17 | Inga Þóra Pálsdóttir | laganemi við HÍ |
18 | Guðfinnur Sigurvinsson | stjórnsýslufræðingur |
19 | Guðmundur Ingi Rúnarsson | lögreglumaður |
20 | Sólon Guðmundsson | flugmaður |
21 | Helga Möller | tónlistarmaður |
22 | Kristján Jónas Svavarsson | stálvirkjasmíðameistari |
23 | Björgvin Elvar Björgvinsson | málarameistari |
24 | Petrea Jónsdóttir | fyrrverandi skrifstofustjóri |
25 | Ingimar Sigurðsson | vátryggingaráðgjafi |
26 | Laufey Jóhannsdóttir | Formaður FEBG |