Tólf manns gefa kost á sér til stjórnar Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Jón Karl Ólafsson gefur einn kost á sér til formanns Varðar og verður hann því sjálfkjörinn á aðalfundi fulltrúaráðsins sem fram fer næstkomandi fimmtudag, 18. mars, kl. 11:00 í Valhöll. Kosið verður um sjö stjórnarsæti á aðalfundinum.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörsins rann út kl. 16:00 síðastliðinn mánudag. Í heildina bárust 14 framboð til stjórnar Varðar. Eitt framboð barst eftir að framboðsfresturinn rann út og eitt framboð uppfyllti ekki skilyrði reglugerðar Varðar um kjörgengi og voru þau því úrskurðuð ógild.
Skrifleg kosning til stjórnar Varðar fer fram fimmtudaginn 18. mars í Valhöll frá kl. 11:00 til 20:00. Á kjörseðli skal kjósa 4 – 7 frambjóðendur, hvorki fleiri en 7 né færri en 4.
Munið skilríkin!
Eftirfarandi aðilar eru í framboði til formanns Varðar:
Jón Karl Ólafsson
Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar Varðar:
Þórarinn Stefánsson
Anna Hrefna Ingimundardóttir
Ásmundur Sveinsson
Elín Engilbertsdóttir
Einar Hjálmar Jónsson
Einar Sigurðsson
Magnús Júlíusson
Matthildur Skúladóttir
Ólöf Skaftadóttir
Reynir Vignir
Rúna Malmquist
Sigurður Helgi Birgisson