Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi:
,,Ef við lítum á björtu hliðarnar, þá hefur samkomubannið hið minnsta, opnað þá löngu tímabæru umræðu, hvað börn eru leiðinleg”. Svohljóðandi var fullyrðing barnlausrar vinkonu, sem unir hag sínum vel. Hún fylgist kímin með barnafólki - á botni mannlegrar eymdar - yfir skertri leikskólaþjónustu, á tímum heimsfaraldurs. Fullyrðingunni er ég vitaskuld ósammála. Börn eru það besta og helst vildi ég þrettán – en ég kann að meta húmorinn.
Nýlega sótti ég fyrirlestur hjá þjóðþekktri leikkonu. Hún taldi engar aðstæður svo alvarlegar að hlátrinum fyndist ekki staður. Hún sagði sögu af óhugsandi harmleik – jarðarför ungs barns – hvar bróðir sagði eftir langa mæðu, raunamæddur og ákveðinn: ,,Þetta er um það bil leiðinlegasta jarðarför sem ég hef farið í”. Viðstaddir gátu ekki annað en hlegið að einlægni og sakleysi barnsins – og hafandi hlegið um stund varð þeim jafnframt auðveldara að móttaka sorgina. Hláturinn er eitt það fegursta sem mannfólkið á og hann veitir huggun þegar móti blæs.
Samkomubann, sóttkví og fjöldatakmarkanir reynast mörgum torfæra. Sá nýi veruleiki er þó uppfullur af tækifærum. Margir kynnast jákvæðum hliðum fjarvinnu og fjarkennslu - sem hvoru tveggja auka sveigjanleika og hagræði. Innlend netverslun færist í aukana og veitir þeirri erlendu aukna samkeppni. Útivist, hreyfing og gönguferðir verða algengari. Landsmenn vanda handþvott, safna ketilbjöllum og ætla sér flestir að vera sæmilega vel skeindir.
Angela Merkel og Margrét Danadrottning ávörpuðu þjóðir sínar á dögunum. Þær ræddu breytta mannlega hegðun og það nýstárlega merki umhyggju, að halda hæfilegri fjarlægð. Fjarlægðarreglur eru mikilvægar sóttvarnaráðstafanir – jafnvel merki um ást og umhyggju - en þeim fylgir gjarnan einsemd.
Í samstöðu er íslenska þjóðin best. Þegar heimsóknarbann olli öldruðum einsemd glöddu skólabörn og listamenn með tónlist. Þegar fjölga þurfti skimunum bauð Íslensk erfðagreining aðstoð. Þegar viðkvæmir þurftu tillit lengdu verslanir opnunartíma. Þegar spítala skorti öndunarvélar barst nafnlaus hjálparhönd. Kærleikann þarf ekki að ríkisvæða. Fólk og fyrirtæki leggja sitt að mörkum.
Forystuteymi þjóðarinnar veitir upplýsingar, dregur úr óvissu og ávinnur traust. Það er mikilvægt – því óvissan er systir óttans – og með traustinu kemur samstaðan. Ástandið er tímabundin torfæra og hláturinn góður ferðafélagi. Við munum komast upp brattasta hjallann og minnast þess við leiðarlok – að einmitt þegar róðurinn reyndist þyngstur - sýndi mennskan sitt fegursta andlit. Samhug og samstöðu. Víðfeðmi kærleikans.
Greinin birtist á visir.is 21. mars 2020