Viðtalstímar kjörinna fulltrúa vorið 2019
Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða, frá og með föstudeginum 12. apríl næstkomandi, með opna viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Hver viðtalstími getur verið allt að 15 mínútur að lengd. Vakin er athygli á því að hægt er að óska eftir því að viðtalið fari fram í gegnum síma. Bóka verður tíma fyrirfram en starfsmaður Valhallar mun síðan úthluta viðtalstímum og taka mið af innsendum beiðnum.
Hægt verður að bóka viðtalstíma með því að senda tölvupóst á netfangið skuli@xd.is eða með því að hafa samband við skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í síma 515-1700. Boðið verður upp á viðtalstíma fram í júní. Dagsetningar viðtalstímanna, sem og hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.
Föstudagurinn 12. apríl
Brynjar Níelsson og Örn Þórðarson
Föstudagurinn 26. apríl
Ásmundur Friðriksson og Hildur Björnsdóttir
Föstudagurinn 3. maí
Birgir Ármannsson og Valgerður Sigurðardóttir
Föstudagurinn 10. maí
Bryndís Haraldsdóttir og Egill Þór Jónsson
Föstudagurinn 17. maí
Njáll Trausti Friðbertsson og Marta Guðjónsdóttir
Föstudagurinn 24. maí
Haraldur Benediktsson og Katrín Atladóttir
Föstudagurinn 31. maí
Jón Gunnarsson og Björn Gíslason
Föstudagurinn 7. júní
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Eyþór L. Arnalds
Föstudagurinn 14. júní
Óli Björn Kárason og Jórunn Pála Jónasdóttir
Föstudagurinn 21. júní
Páll Magnússon og Alexander Witold Bogdanski
Föstudagurinn 28. júní
Vilhjálmur Árnason og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir