„Íslendingar þurfa að finna lausnir og hugmyndir að því hvernig sé hægt að gera velferðarkerfin okkar skilvirkari, notendavænni og ódýrari svo það sé gerlegt fyrir Íslendinga að viðhalda þeim án þess að öll aukin verðmætasköpun fari í að greiða fyrir þau. Þar er nýsköpun algjört lykilatriði,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson í sjónvarpsþættinum 21 á Kjarnanum sem frumsýndur var 10. október sl.
„Við erum í dag fimm manns að vinna á hvern eldri borgara, svona um það bil. Innan ekki svo langs tíma þá erum við komin niður í kannski tvo. Á sama tíma erum við með heilbrigðiskerfi sem ríkir pólitísk sátt um að eigi að vera opið fyrir alla. Við erum búin að segja að það sé óháð efnahag og öðru, þú átt aðgang hér að heilbrigðiskerfinu. Þetta heilbrigðiskerfi okkar verður bara dýrara og dýrara.“
Í þessu samhengi sagði ráðherra nauðsynlegt að fjárfesta í fólki til að leysa þessar áskoranir með opinbera kerfinu.
„Þá þurfum við að fá fólk þarna úti til að koma með allar þessar lausnir og hugmyndir að því hvernig við getum gert þetta kerfi skilvirkara, betra fyrir fólk sem þarf að nota það og ódýrara þannig að það sé okkur gerlegt, að það fari ekki bara öll aukin verðmætasköpun sem við erum að reyna að búa til, að það fari ekki bara allt inn í velferðarkerfið sem okkur er mjög umhugað um að halda. Í þessu er nýsköpun algjört lykilatriði og mér finnst að við eigum að fara að leggja miklu meiri áherslu á það,“ sagði Þórdís Kolbrún.
Í þættinum ræddi ráðherra um þriðja orkupakka ESB, nýsköpunarstefnu og almennt um nýsköpun.
Þáttinn í heild sinni má finna hér.