Alþingi samþykkti í kvöld frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingu á lögum um fiskeldi - sjá eldri frétt hér.
Með lögunum er ráðherra nú heimilt að gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða þegar rekstrarleyfi er fellt úr gildi, m.a. á grundvelli úrskurðar stjórnsýslunefnda, en þó einungis að því gefnu að ríkar ástæður mæli með slíku og að fenginni umsögn Matvælastofnunar.
Frumvarpið var samþykkt með 45 atkvæðum án mótatkvæða, en 6 þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Hér má finna upplýsingar um feril málsins á Alþingi.
Hér má sjá lögin í heild.
Hér má sjá frétt á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um málið.