Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Sel-Hóteli í Mývatnssveit laugardaginn 3. mars nk.
Fundurinn hefst klukkan 13:00 með skýrslu fráfarandi stjórnar. Eftir það tekur við hefðbundin dagskrá aðalfundar í samræmi við lög ráðsins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, verða gestir þingsins og flytja ávarp auk þingmanna flokksins í kjördæminu.
Dagskrá kjördæmisþings 3. mars:
13:00 Fundur hefst – kosning fundarstjóra og fundarritara
a. Skýrsla stjórnar – Kristinn Frímann Árnason, formaður kjördæmisráðs
b. Reikningsskil – Þórhallur Harðarson, gjaldkeri kjördæmisráðs
c. Ákvörðun árgjalds
13:20 Kosningar
a. Kosning formanns
b. Kosning 14 stjórnarmanna og 15 varastjórnarmanna
c. Kosning kjörnefndar
d. Kosning í flokksráð
e. Kosning til miðstjórnar
f. Kosning skoðunarmanna reikninga
13:40 Flokksstarfið - verkefnin framundan: Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
14:00 Staðan í pólitíkinni:
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður
15:00 Kaffihlé
15:15 Fyrirspurnartími: Kristján Þór, Áslaug Arna, Þórdís Kolbrún og Njáll Trausti svara spurningum fundarmanna
16:15 Fundarlok - formaður slítur fundi.
Þinggjald er 2.000 kr. (Ath. enginn posi)
Fyrir fundinn er í boði súpa og salatbar fyrir þá sem það vilja og hver borgar fyrir sig.
Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi