Fjármálaáætlun 2018 - 2022 – Opinn fundur í Valhöll kl. 8:30 - 9:30 á föstudag, 5 maí
Opinn morgunfundur verður um fjármálaáætlun 2018 - 2022 á föstudaginn kemur kl. 8:30 - 9:30. Fundurinn verður í bókastofu Valhallar. Fjármálaáætlunin var lögð fram til fyrstu umræðu á Alþingi fyrir skömmu.
Páll Magnússon þingmaður og Kristrún Mjöll Frostadóttir hagfræðingur hjá Viðskiptaráði verða með erindi á fundinum. Félagsmenn eru hvattir til að koma og taka þátt í líflegum umræðum
Fundarstjóri: Sigrún Jenný Barðadóttir, formaður fjárlaganefndar Sjálfstæðisflokkisins.
Gott kaffi og brauðmeti á staðnum.