Jólagleði Varðar

Nú fer óðum að styttast í hátíðirnar og af því tilefni býður Vörður–fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík til jólagleði næsta fimmtudag, 12. desember, í Valhöll frá klukkan 18:00 til 20:00.

Eyþór L. Arnalds, oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins, verður heiðursgestur.

Halldór Einarsson í Henson les upp úr nýútkominni ævisögu sinni, Stöngin út.

Séra Aldís Rut Gísladóttir, prestur í Langholtskirkju, flytur jólahugvekju.

Léttar veitingar og fljótandi veigar í boði.

Allir velkomnir.