Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fer fram á Kirkjubæjarklaustri dagana 25. – 26. maí 2019.
Fundurinn verður settur laugardaginn 25. maí kl. 17:00 og áætluð fundarlok eru kl. 14:30 sunnudaginn 26. maí 2019.
Dagskrá:
Laugardagur 25. maí
17:00 Fundarsetning og kosning starfsmanna.
17:05 Hefðbundin aðalfundarstörf skv. röð hér að neðan.
17:30 Ávörp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur ritara Sjálfstæðisflokksins og Þórðar Þórarinssonar framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins.
Að loknum umræðum um erindi ritara og framkvæmdastjóra verður gert hlé á fundi til morguns.
19:30 Kokteill í boði kjördæmisráðs á Hótel Laka
Hátíðarkvöldverður til að fagna 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins.
Sunnudagur 26. maí
09:30 Hefðbundin aðalfundarstörf skv. röð hér að ofan (áframhald)
10:15 Ávörp þingmanna
10:35 Umræður þar sem þingmenn kjördæmisins og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ritari Sjálfstæðisflokksins sitja fyrir svörum.
11:15 Kosningar
11:40 Kosning fulltrúa í miðstjórn
12:00 Léttur hádegisverður. Á meðan ræða fulltrúar um framtíðarskipan kjördæmisráðs á borðum. Hópstjórar á hverju borði haldi utan um meginefnin sem rædd eru á hverju borði.
13:15 Hópstjórar kynna meginniðurstöður af hverju borði. Umræður.
14:00 Önnur mál
14:30 Áætluð fundarslit
Skráning í gistingu og aðrar nánari upplýsingar fást hjá formanni á netfangið sudur@xd.is
Stjórnin