Hildur Sverrisdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins:
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað og áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu. Því miður hafa verðbólguhorfur þó versnað, spennan í þjóðarbúinu reynist meiri og gengi krónunnar lækkað. Verðbólguvæntingar hafa einnig haldist háar og kostnaðarhækkanir haft meiri áhrif á verðbólgu en áður. Auk óvissu vegna efnahagslegra áhrifa í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesi benda þessir þættir til þess að mögulega þurfi að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar.
Ekki ómöguleg staða
Verðbólguskeiðið núverandi hófst með verðhækkunum sem tengdust framleiðsluhökti vegna heimsfaraldurs Covid og sóttvarnaráðstafana vegna hans. Einnig hafði áhrif hækkun orku-, gas- og hrávöruverðs vegna innrásar Rússlands í Úkraínu, sem svo ágerðust vegna mikillar eftirspurnar eftir að efnahagsleg áhrif faraldursins runnu sitt skeið.
Þrátt fyrir að ástæður þessarar stöðu sé hægt að greina og útskýra gerir það stöðuna ekki minna krefjandi en hún er blessunarlega ekki ómöguleg.
Mismunandi hlutverk að sameiginlegu markmiði
Til að vinna okkur út úr þessari stöðu hafa allir mismunandi hlutverki að gegna en með sameiginlegt markmið; að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Ríkisfjármálin hafa þar helst það hlutverk að ýta ekki undir þenslu í hagkerfinu sem gerist best með temprun á vexti útgjalda, hagræðingu og sífelldri vinnu gegn sóun í ríkisrekstri. Þó þingmönnum finnist alla jafna alltof skemmtilegt að gefa opinbera fjármuni til hins ýmsa má það hreinlega ekki vera lenskan núna. Þingið verður einfaldlega að standa undir sínu hlutverki í þessu verkefni.
Það jákvæða er að það á að vera hægt að leysa úr þessari stöðu ef við sameinumst um það. Það hefur hægt á verðhækkunum og forsendur standa til að verðbólga og vextir lækki á nýju ári ef okkur lánast að réttar ákvarðanir verði teknar í sameiningu.
Heildarmyndin verði áttavitinn
Það er engin ástæða til að gera lítið úr áhrifum vaxta og verðbólgu á fólk, fyrirtæki og heimilin í landinu en þar verður að horfa á heildarmyndina og ákveða aðgerðirnar út frá henni. Með það fyrir augum að laun hafa hækkað mikið og kaupmáttur launa hefur þrátt fyrir allt aukist er til að mynda augljóst að viðlíka launahækkanir núna munu gera erfiða stöðu miklu verri.
Hér mun reyna á og hér má ekki missa sjónar af staðreyndum heildarmyndarinnar. Það er verkefnið sem við verðum að vinna saman, bera sömu ábyrgð og ganga saman í sömu átt. Hvort sem það er Seðlabankinn, ríkisstjórnin, Alþingi eða aðilar vinnumarkaðsins.Við erum öll saman á þessum báti og ef við reynum að sigla hvert í sína átt er algjörlega fyrirsjáanlegt að brotsjórinn skelli jafnt á okkur öllum.
Greinin birtist á visir.is 23. nóvember 2023.