Hagræðing sótt beint í vasa skattgreiðenda

Í dag fóru fram oddvitaumræður í borgarstjórn um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 og fjármálastefnu Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 2024 til 2028.

Útkomuspá fyrir rekstur samstæðu Reykjavíkurborgar árið 2023 gerir ráð fyrir halla sem nemur 4,4 milljörðum.

„Niðurstaðan er nokkuð óvænt enda gerði fjárhagsáætlun ársins ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu sem myndi nema 8,1 milljarði. Hér er því um að ræða neikvæða sveiflu í rekstri samstæðunnar sem nemur 12,5 milljörðum,“ sagði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins.

Hildur benti jafnframt á að hingað til hafi borgarstjóri getað stært sig af jákvæðum samstæðureikningi, að mestu vegna þess hvernig hækkandi húsnæðisverð og hækkandi álverð á heimsmörkuðum hefði haft jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu Félagsbústaða og Orkuveitunnar. Hvoru tveggja hefði ekkert að gera með grunnrekstur samstæðunnar, heldur hefði í báðum tilfellum verið lítið annað en loft í uppgjörum félaganna og nú þegar gæfi á bátinn, kæmi í ljós að keisarinn væri nakinn og rekstur samstæðunnar stæði höllum fæti.

Sjónhverfingar fremur en hagræðingar

Hildur vakti athygli á því að rekstrarniðurstaða borgarsjóðs væri neikvæð sem næmi 4,8 milljörðum króna. „Hér stíga fulltrúar meirihlutans fram og tala um gríðarlegan viðsnúning í rekstri borgarinnar, eins og nær 5 milljarða hallarekstur sé eitthvað gamanmál. Þau segja umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir helstu ástæðu þess að rekstrarniðurstaðan hefur þó skánað frá fyrra ári.“

Þá rifjaði hún upp hvernig Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, boðaði fyrir tæpu ári, „einar mestu hagræðingaraðgerðir frá hruni“. Hagræðingarkrafa var sett á öll svið, þeim gert að draga úr launakostnaði og nýjar ráðningarreglur innleiddar svo stemma mætti stigu við starfsmannafjölgun. „Þessu var ekki fylgt eftir. Þegar tölurnar eru rýndar kemur í ljós að launakostnaður jókst um 7,3 milljarða milli ára og rekstrarkostnaður sömuleiðis um 3,9 milljarða. Starfsfólki fækkaði ekki á einu einasta sviði borgarinnar, heldur fjölgaði heilt yfir,“ sagði Hildur jafnframt.

Auk þess benti hún á að tekjur borgarinnar hefðu aukist umtalsvert milli ára. Skatttekjur, framlög Jöfnunarsjóðs og arðgreiðslur hefðu hækkað um nærri 21 milljarð milli ára. „Það er því ljóst að viðsnúningurinn er ekki fenginn með hagræðingu í rekstri. Nei, hann er fenginn beint úr vösum skattgreiðenda. Hann er fenginn úr auknu útsvari og úr nýjum framlögum ríkisins vegna málaflokks fatlaðs fólk. En hann er líka fenginn með auknum arðgreiðslum úr Orkuveitu og Faxaflóahöfnum – arðgreiðslum sem aukast um tæpan einn og hálfan milljarð frá áætlun. Borgarstjóri gerði auknar arðgreiðslukröfur á þessi mikilvægu innviðafyrirtæki til að plástra eigin hallarekstur. Hann virðist kæra sig kollóttan um þær mikilvægu innviðafjárfestingar sem framundan eru hjá fyrirtækjunum – og hirðir enn síður um þá mótsögn að fara fram á arðgreiðslur umfram áætlanir, hjá Orkuveitu með versnandi afkomu. Ef það er eitt sem einkennir Samfylkingu þá er það þetta: Ef þau finna tekjutusku þá vinda þau hana,“ sagði Hildur.