Árangur fyrir heimilislausar konur

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi:

Það er viðurkennt vandamál að heimilisleysi kvenna er mjög dulið sökum þess að talningar byggja einungis á gögnum um alla þá sem hafa einhvern tímann leitað í þjónustu borgarinnar vegna heimilisleysis, fyrir vikið er alltaf sá fyrirvari settur í öllum úttektum að líklegast sé umfangið vanáætlað. Þessi vanáætlun gerði vel vart við sig þegar ríki og borg tóku höndum saman í Covid og opnuðu tímabundið neyðarathvarf fyrir heimilislausar konur í Skipholti. Ásóknin var mikil en árangurinn líka, því úrræðið líktist miklu frekar fyrirkomulagi stúdentaíbúða en neyðarskýla og reyndist valdeflandi. Konurnar fengu sér herbergi með sér baðherbergi, opið var allan sólarhringinn og matur í boði sem er langtum meiri stuðningur en konurnar höfðu áður kynnst. Líkt og í Konukoti var unnið út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði og ekki sú krafa gerð að konurnar þyrftu að vera vímuefnalausar. Þetta litla einka afdrep þeirra og utanumhaldið leiddi þó til þess að þær höfðu meira rými til að hvílast og þannig leggja grunninn að bata. Eftir lokun athvarfsins héldu allar konurnar áfram í önnur framhaldsúrræði, ekki ein einasta snéri aftur á götuna, sem er áður óþekktur árangur.

Neyðarathvarf verður að áfangaheimili

Í nóvember 2021 sem ég lagði fyrst fram tillögu fyrir hönd okkar Sjálfstæðismanna um nýtt neyðarathvarf fyrir heimilislausar konur í anda þess sem var í Skipholtinu í Covid. Eftir snúninga í borgarstjórn og Velferðarráði var tillagan send til skoðunar í stýrihóp um heimilisleysi sem formaður Velferðarráðs, Heiða Björg, leiddi sjálf. Tillagan hlaut þar framgang undir formerkjum nýs áfangaheimilis fyrir heimilislausar konur með vímuefnavanda, en það er þáttur í stefnubreytingu í málaflokknum í átt að meiri þrepaskiptingu þjónustunnar sem hefur gefið góða raun erlendis. Svo núna síðasta miðvikudag þann 1. febrúar 2023 var tillagan loks samþykkt í Velferðarráði. Nú er bara að fylgja tillögunni úr samþykkt yfir í framkvæmd.

Við Sjálfstæðismenn erum virkilega hreykin af þessum árangri. Tillagan var svar við ákalli um að láta þessa þjónustu borgarinnar virka betur fyrir notendur hennar, og var forsenda ákvörðunar um að flýta endurskoðun á þjónustu borgarinnar í málefnum heimilislausra. Ný stefna var mörkuð þar sem lengra er gengið í að mæta fólki á þeirra forsendum. Öflugur stuðningur fólks víðsvegar að og þvert á flokka gaf tillögunni byr undir báða vængi. Fyrir hönd okkar sjálfstæðismanna vil ég því þakka öllum sem lögðu málinu lið, kollegum mínum í Velferðarráði fyrir að veita góðri tillögu framgang og nýta hana vel, og seinast ekki síst öllum þeim sem starfa í málaflokknum og greiddu fyrir tillögunni með sínu góðu starfi og umbótavilja.

Greinin birtist á visir.is 4. febrúar 2023.