Rúmlega 20 þúsund manns gáfu hundruð milljóna til almannaheillastarfsemi í nóvember og desember í fyrra, með tilkomu nýrra skattahvata úr lagafrumvarpi Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra.
Þetta kom fram í frétt fjármála- og efnahagsráðuneytisins um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga fyrir árið 2021.
Samtals er um að ræða 416 milljónir til félaga á almannaheillaskrá og getur endurgreiðslan numið á bilinu 130 til 192 milljónum króna, eftir því í hvaða skattþrepi frádrátturinn lendir.
Lög um félög til almannaheilla tóku gildi 1. nóvember á síðasta ári. Við það tilefni kvaðst Bjarni binda vonir við að hvatar fyrir almenning til að láta gott af sér leiða án milligöngu hins opinbera myndu styrkja stöðu íslenskra almannaheillafélaga:
„Með breytingunum sendum við skýr skilaboð til þeirra þúsunda sjálfboðaliða sem starfa við almannaheillastarfsemi um allt land að störf þeirra séu mikils metin og skipti okkur öll máli,“ sagði Bjarni.
Lögin heimila skattafrádrátt fyrir allt að 350 þúsund krónum á ári vegna gjafa og framlaga til félaga sem skráð eru á almannaheillaskrá Skattsins. Til almannaheillafélaga teljast meðal annars ýmis mannúðar- og líknarstarfsemi, æskulýðs- og íþróttastarfsemi, starfsemi björgunarsveita og neytenda- og forvarnarstarfsemi. Frekari upplýsingar um almannaheillaskrá og önnur hagnýt atriði er að finna á vef Skattsins.
Heildarendurgreiðsla vegna framlaga til almannaheillafélaga á síðasta ári mun liggja fyrir þegar álagning lögaðila fyrir árið verður birt í kringum næstu mánaðarmót.