Bjarni tilkynnir um frekari sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hef­ur ákveðið að hefja fram­hald sölumeðferðar á hlut­um í Íslands­banka. Ráðherra sendi Bankasýslunni bréf um ákvörðunina í dag en ríkið á í dag um 65% hlut í bank­an­um.

Ákvörðunin byggir á fyrirliggjandi greinargerð sem lögð var fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingi og felur í sér að bankinn skuli seldur í áföngum fyrir árslok 2023.

Umsagnir nefndanna liggja nú fyrir, en meiri hlutar þeirra beggja mæla með því að hafist verði handa við framhald sölu. Þá telur Seðlabankinn að telja megi að jafnræði bjóðenda verði tryggt og er salan talin hafa takmörkuð áhrif á gjaldeyrismarkað, gjaldeyrisforða bankans og laust fé í umferð.

Framhald sölu verður háð því að markaðsaðstæður séu hagfelldar. Þrátt fyrir að ófriður í Austur Evrópu hafi haft margháttuð áhrif á eigna- og fjármálamarkaði á heimsvísu telur Bankasýslan að það raski ekki meginforsendum söluáformanna að svo stöddu. Þannig hafi verð á hlutum í bankanum ekki verið hærra en það er um þessar mundir.