Almar Guðmundsson er nýr oddviti sjálfstæðismanna í Garðabæ þegar úrslit hafa verið birt úr prófkjör flokksins í sveitarfélaginu. Hlaut Almar 832 atkvæði í fyrsta sæti.

Alls tóku 2.448 þátt í prófkjörinu. Kjörsókn var rétt undir 50%. Auðir seðlar og ógildir voru 80.

 

 

Röð efstu átta eftir lokaniðurstöður eru svohljóðandi:

  1. sæti Almar Guðmundssson með 832 atkvæði í 1. sæti.
  2. sæti Áslaug Hulda Jónsdóttir með 1032 atkvæði í 1.-2. sæti.
  3. sæti Björg Fenger með 1153 atkvæði 1.-3. sæti
  4. sæti Sigríður Hulda Jónsdóttir með 1177 atkvæði í 1.-4. sæti
  5. sæti Margrét Bjarnadóttir með 828 atkvæði í 1.-5. sæti
  6. sæti Hrannar Bragi Eyjólfsson með 1048 atkvæði í 1.-6. sæti.
  7. sæti Gunnar Valur Gíslason með 1111 atkvæði í 1.-7. sæti.
  8. sæti Guðfinnur Sigurvinsson með 1193 atkvæði í 1.-8. sæti.

Hér má nálgast frekari sundurliðun á atkvæðum.