Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi samþykktur

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á fundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í dag 25. júlí.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, leiðir listann. Í öðru sæti er Haraldur Benediktsson, alþingismaður og bóndi. Í þriðja sæti er Teitur Björn Einarsson, lögfræðingur og varaþingmaður. Í fjórða sæti er Sigríður Elín Sigurðardóttir, sjúkraflutningakona og í fimmta sæti er Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, ráðgjafi.

Listann í heild sinni má finna hér að neðan:

1 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra
2 Haraldur Benediktsson alþingismaður og bóndi
3 Teitur Björn Einarsson Lögfræðingur og varaþingmaður
4 Sigríður Elín Sigurðardóttir Sjúkraflutningakona
5 Guðrún Sigríður Ágústsdóttir Ráðgjafi
6 Örvar Már Marteinsson Skipstjóri
7 Magnús Magnússon Sóknarprestur
8 Lilja Björg Ágústsdóttir Lögmaður og forseti sveitarstjórnar
9 Bjarni Pétur Marel Jónasson Aðhlynning
10 Bergþóra Ingþórsdóttir Nemi í félagsráðgjöf
11 Friðbjörg Matthíasdóttir Oddviti í Vesturbyggð og viðskiptafræðingur
12 Sigrún Hanna Sigurðardóttir Búfræðingur og bóndi
13 Anna Lind Særúnardóttir Meistaranemi í félagsráðgjöf
14 Gísli Sigurðsson Framkvæmdastjóri Tengils og formaður Byggðaráðs
15 Guðmundur Haukur Jakobsson Pípulagningameistari og forseti sveitarstjórnar
16 Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Viðskiptafræðingur