Tölur eftir 4.857 atkvæði: Áslaug Arna leiðir

Nú þegar 4.857 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra efst með 2.333 atkvæði.

Í öðru sæti er Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra  með 3.291 atkvæði í 1. – 2. sæti.

Í þriðja sæti er Diljá Mist Einarsdóttir með 1.895 atkvæði samanlagt í 1. – 3. sæti.

Í fjórða sæti er Hildur Sverrisdóttir með 1.906 atkvæði samanlagt í 1. – 4. sæti.

Í fimmta sæti er Birgir Ármannsson með 2.326 atkvæði samanlagt í 1. – 5. sæti.

Í sjötta sæti er Brynjar Níelsson með 2.605 atkvæði samanlagt í 1. – 6. sæti.

Í sjöunda sæti er Kjartan Magnússon með 2.308 atkvæði samanlagt í 1. – 7. sæti.

Í áttunda sæti er Sigríður Á. Andersen með 2.120 atkvæði samanlagt í 1. – 8. sæti.

Næstu tölur verða birtar á miðnætti og þeim verður streymt beint á facebook síðu Sjálfstæðisflokksins.

Nánari sundurliðun má finna hér.