Guðrún leiðir eftir fyrstu 3.000 atkvæðin
'}}

Þegar 3.000 atkvæði hafa verið talin í pófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi stendur Guðrún Hafsteinsdóttir efst með 1.473 atkvæði.

Í öðru sæti er Vilhjálmur Árnason með 1.722 atkvæði í 1. - 2. sæti.

Í þriðja sæti er Ásmundur Friðriksson með 1.555 atkvæði í 1. - 3. sæti.

Í fjórða sæti er Björgvin Jóhannesson með 1.312 atkvæði í 1. - 4. sæti.

Í fimmta sæti er Ingveldur Anna Sigurðardóttir með 1.869 atkvæði í 1. - 5. sæti.