Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
Á næstu árum er fyrirhuguð nokkuð umfangsmikil uppbygging fiskeldis hér á landi. Þannig er áætlað að framleiðslumagn ársins í ár af laxi tæplega tvöfaldist frá fyrra ári. Útflutningsverðmæti fiskeldis verði þannig á pari við það sem loðnan hefur skilað þjóðarbúinu undanfarin ár eða um 20 milljarðar. Áætlanir fyrirtækjanna gera ráð fyrir frekari aukningu á næstu árum og gæti útflutningsverðmæti greinarinnar orðið um 40 til 50 milljarðar árið 2021.
Ábyrgð stjórnvalda við þessa uppbygging er fyrst og síðast að sníða greininni þannig lagaumhverfi að fiskeldið byggist upp með sjálfbærum og ábyrgum hætti. Samþykkt Alþingis á frumvarpi um fiskeldi í júní sl. er stórt skref í þá veru, m.a. með því að lögfesta áhættumat erfðablöndunar, auka ráðstafanir vegna laxalúsar og auka gegnsæi um starfsemi fiskeldisfyrirtækja, m.a. með tíðari upplýsingagjöf.
Í umræðu um þetta frumvarp í vor var ítrekað kallað eftir því að það þyrfti að styrkja rannsóknir með fiskeldi auk þess að styrkja stjórnsýslu og eftirlit með greininni. Ein af helstu áherslum mínum í fjárlagafrumvarpi næsta árs er 175 milljón króna framlag til þess að gera einmitt þetta - auka rannsóknir og efla stjórnsýslu og eftirlit. Af þessari fjárhæð munu um 90 milljónir verða settar í að efla Umhverfissjóð sjókvíaeldis sem hefur það meginmarkmið að lágmarka umhverfisáhrif fiskeldis. Það sem gerir okkur kleift að ráðast í þetta átak er löggjöf sem Alþingi samþykkti í sumar og tekur gildi 1. janúar næstkomandi um gjaldtöku vegna fiskeldis í sjó. Með þessu eru stjórnvöld jafnframt að standa við fyrirheit um að tekjum af þeirri gjaldtöku verði varið til að treysta enn frekar ábyrga uppbyggingu greinarinnar.
Stjórnvöld hafa nú sett íslensku fiskeldi traustari lagaumhverfi en áður var. Með framangreindum áherslum í fjárlagafrumvarpi næsta árs er verið að fylgja þeirri stefnumörkun eftir. Uppbygging fiskeldis verði þannig ábyrg og sjálfbær. Verði á grundvelli vísinda og rannsókna og hafi ekki skaðleg áhrif á villta laxastofna. Þannig verður á sama tíma reynt að stuðla að meiri sátt um uppbyggingu greinarinnar.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 3. október 2019.