Óli Björn Kárason alþingismaður:
Enginn hagfræðingur, viðskiptafræðingur eða fjármálaverkfræðingur er þess umkominn að skera úr um hver sé hagkvæmasta stærð sveitarfélaga. Enginn sveitarstjórnarmaður, þingmaður eða ráðherra, hefur forsendur til að ákveða hver skuli vera lágmarks fjöldi íbúa í hverju sveitarfélagi svo íbúarnir fái notið þeirrar þjónustu sem þeir gera kröfu til og eiga rétt á samkvæmt lögum.
Í byrjun þessa árs voru 72 sveitarfélög á landinu og fækkaði þeim um tvö á liðnu ári. Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru sjö sveitarfélög með færri íbúa en 100 og 40 með undir 1.000. Aðeins tíu sveitarfélög eru fjölmennari en 5.000. Árið 1990 voru sveitarfélög 204 talsins þannig að þeim hefur fækkað hressilega á undanförnum áratugum og þar hafa íbúarnir sjálfir fyrst og síðast ráðið ferðinni.
Ekki frumlegar hugmyndir
Reglulega koma fram hugmyndir um að rétt sé og skylt að þvinga fámenn sveitarfélög til að sameinast öðrum. Lærðir og leiknir taka til máls og færa fyrir því (misjöfn) rök að það sé lífsnauðsynlegt að fækka sveitarfélögum til að ná fram hagkvæmni stærðarinnar. Tillögur um fækkun sveitarfélaga eru ekki frumlegar enda byggjast þær á þeirri trú að það sem er lítið sé veikburða og aumt en hið stóra og fjölmenna sterkt og burðugt. Sem sagt: Stórt er betra en lítið og fjölmenni er hagkvæmara en fámenni.
Samtök atvinnulífsins (SA) gáfu út skýrslu árið 2016 þar sem lagt var til að stefnt yrði að umfangsmikilli sameiningu þannig að sveitarfélög yrðu tíu. Með stærri og öflugri sveitarfélögum ykjust möguleikar á að flytja fleiri verkefni frá ríkinu til sveitarfélaganna og hagkvæmni í rekstri einnig. Skýrsla SA er fróðleg en sá er þetta skrifar var og er fullur efasemda þótt það skuli ekki dregið í efa að í mörgum tilfellum þjóni sameining sveitarfélaga hagsmunum íbúanna.
Í júlí 2017 var birt skýrsla verkefnastjórnar á vegum ráðherra sveitarstjórnarmála um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga. Niðurstaðan var að fækka yrði sveitarfélögum og skilgreina þau verkefni sem sveitarfélögin verði að geta sinnt. Vegna þessa sé nauðsynlegt að hækka lágmarks íbúafjölda í þrepum þannig að í ársbyrjun 2026 verði íbúar ekki færri en eitt þúsund. Verkefnastjórnin taldi rétt að sameiningar sveitarfélaga vegna lögbundins lágmarks fjölda verði ekki bornar undir íbúa í atkvæðagreiðslu. Með öðrum orðum: Íbúarnir eiga ekki að ráða för.
„Hagkvæmni stærðarinnar“
Í lok apríl síðastliðins birti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið Grænbók – stefnu um málefni sveitarfélaga. Bókin er gott innlegg í nauðsynlega umræðu og stefnumótun en hún var sérstaklega kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og þar gátu allir komið með athugasemdir og ábendingar. Grænbókin er m.a. byggð á fyrrnefndri skýrslu verkefnastjórnar. Í frétt Ríkisútvarpsins í síðustu viku kom fram að stefnt er að því að leggja fram í haust þingsályktunartillögu um stefnumarkandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga.
Rauði þráðurinn í röksemdum þeirra sem vilja fækka sveitarfélögum – gera þau fjölmennari – er „hagkvæmni stærðarinnar“. Vænthagkvæmni og von um lægri stjórnsýslukostnað á hvern íbúa getur hins vegar ekki markað stefnuna í þessum efnum. Excel-skjöl og reiknilíkön geta verið ágæt til síns brúks en aðeins samfélagsverkfræðingar taka þau sem algild sannindi.
Reykvíkingar vita það öðrum Íslendingum betur að „stærðarhagkvæmnin“ tryggir ekki að fjármunir íbúanna séu nýttir með skynsamlegum hætti og að þeir fari til þeirra verkefna sem þeir leggja áherslu á. Ánægja er ekki í beinu samhengi við fjölda. Hvernig kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum tekst að uppfylla skyldur sínar við íbúana ræðst heldur ekki af stærð og fjölmenni. Þá verða rök fyrir „hagkvæmni stærðarinnar“ ekki sótt í rekstur og efnahag sveitarfélaga – það er hreinlega ekki hægt að draga þá ályktun að árangur sé best tryggður með stórum einingum.
„Rétt“ tala ekki til
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hittir naglann á höfuðið í umsögn um Grænbókina. Það er engin „rétt“ tala til um lágmarksfjölda íbúa:
„Sameining og/eða samstarf sveitarfélaga verður að byggjast á fjárhagslegum, félagslegum og landfræðilegum forsendum en ekki bara á höfðatölu. Fyrst og síðast á þó vilji íbúa að ráða ferð svo sem verið hefur. Engin „rétt“ tala er til fyrir lágmarks íbúafjölda í sveitarfélögum á Íslandi.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hafnar alfarið hugmyndum um lögþvingaða sameiningu sveitarfélaga og hvetur ráðamenn til að virða hagsmuni íbúa og sjálfsákvörðunarrétt í eigin málefnum.“
Hér er tekið undir með sveitarstjórn Grýtubakkahrepps.
Ég hef haldið því fram að eftir því sem fjarlægðin verður meiri milli íbúanna og stjórnsýslunnar séu auknar líkur á því að sameiginlegir fjármunir sveitarfélagsins finni sér annan farveg en vilji íbúanna stendur til. Engin hverfisráð eða rafrænar kosningar koma í stað þess aga sem fólginn er í nálægð íbúanna við kjörna fulltrúa og stjórnsýslu. (Grafarvogsbúar hafa margir velt því fyrir sér hvort hagsmunum þeirra sé ekki betur borgið í sjálfstæðu sveitarfélagi en að tilheyra Reykjavík. Af sjónarhóli meirihluta borgarstjórnar virðist útsýni til úthverfa borgarinnar vera takmarkað.)
Skortur á samkeppni
Í allri umræðunni um sameiningu sveitarfélaga fer lítið sem ekkert fyrir þeirri hugsun að það kunni að þjóna hagsmunum landsmanna að ýtt sé undir samkeppni sveitarfélaga. Samkeppni um íbúa og fyrirtæki kemur aga á rekstur og stuðlar um leið að betri þjónustu. Lögmál samkeppninnar gilda um sveitarfélög líkt og aðra starfsemi. Skortur á samkeppni, ekki síst í þjónustu hins opinbera og fyrirtækja ríkis og sveitarfélaga, er vandamál sem við Íslendingar glímum við. Þegar mörkuð er stefna til langrar framtíðar um málefni sveitarfélaga er fráleitt annað en að huga að þessum þætti.
Það skiptir okkur öll miklu hvernig til tekst við rekstur sveitarfélagsins, sem við höfum valið að búa í. Mörg sveitarfélög eru til fyrirmyndar og hafa náð að samþætta öfluga þjónustu og hófsemd í álögum á einstaklinga og fyrirtæki. Því miður er fjölmennasta sveitarfélagið ekki fyrirmynd í þessum efnum.
Sameining og fækkun sveitarfélaga getur verið ákjósanleg og skynsamleg. Það á hins vegar ekki að vera sérstakt markmið í sjálfu sér að fækka sveitarfélögum – markmiðið er standa vel að þjónustu við borgarana. Excel-skjal sem unnið er í Kvosinni í Reykjavík getur ekki orðið leiðarvísir heldur aðeins vilji íbúanna sjálfra.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 7. ágúst 2019.