Jákvæð áhrif Hvalárvirkjunar
'}}

Hafdís Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi á Ísafirði:

Hvalárvirkjun er lykilatriði í uppbyggingu raforkukerfisins á Vestfjörðum. Þetta er ekki mín skoðun byggð á tilfinningum, heldur grjóthörð staðreynd fengin úr nýlegri skýrslu Landsnets, Tengipunktur við Ísafjarðardjúp og tenging Hvalár. Hér ríkir táningafrelsi, sem betur fer og því hafa margir tjáð sig um Hvalárvirkjun. En í lok dags eru það staðreyndir í málinu sem ég kýs að taka mark á. Af umræðunni að dæma skipta þær suma engu máli sem gerir það að verkum að erfitt er að ræða málið af einhverri skynsemi.

Er rammaáætlun ónýt?

Hvalárvirkjun er í rammaáætlun. Hún komst í gegnum það nálarauga sem rammaáætlun er og hefur þurft að fara í gegnum ótrúlegustu hindranir. Ítrekað. Svo oft að verkefnið kemst varla áfram. Við erum því á krossgötum. Annað hvort fær verkefnið að komast af stað eða viðurkennum að rammaáætlun er ónýt. Gleymum því ekki að rammaáætlun var mikill sigur fyrir umhverfið og átti að vera verkfæri til að greiða úr ágreiningi um hvað skyldi nýta og hvað vernda. Í staðinn hefur hún þau áhrif að ekkert gerist. Hvert skref er ítrekað kært af sömu aðilunum. Virkjun Hvalár á að fá að hefjast sem allra fyrst, annars verður ríkið að viðurkenna gagnsleysi rammaáætlunar og skerast í leikinn.

Lausn við orkuskorti

Það hefur verið karpað um það í fjölmiðlum sl. daga hvort yfirvofandi sé orkuskortur á Íslandi í náinni framtíð. Stjórnendur Landsnets og RARIK hafa haldið því fram. Hver er lausnin? Skynsamleg nýting orkuauðlinda okkar. Það er á hreinu að orkuleysið, afhendingaröryggið og tíðar rafmagnstruflanir hafa hindrað eflingu atvinnulífs á Vestfjörðum. Rafmagnstruflanirnar hafa kostað fyrirtækin á svæðinu háar upphæðir því þær valda skemmdum á tækjabúnaði og vinnutapi. Hvalárvirkjun er eina raunhæfa lausnin við þessu vandamáli. Það er staðreynd. Andstæðingar umhverfisvænnar orkuframleiðslu með Hvalárvirkjun halda því fram að orkan úr Hvalá muni ekkert nýtast Vestfirðingum. Þetta heyrum við Vestfirðingar oft og er þessi yfirlætislega fullyrðing orðin ansi þreytt, enda ósönn. Í skýrslu Landsnets um tengingu Hvalár kemur það skýrt fram að Hvalárvirkjun mun hafa jákvæð áhrif á afhendingaröryggið um alla Vestfirði. Hefur til að mynda fyrirhuguð Kalkþörungaverksmiðja í Súðavík undirritað viljayfirlýsingu um kaup á allt að átta megavöttum af raforku af Vesturverki. Staðreyndirnar gerast ekki skýrari eða sannari.

Tækifæri fyrir Árneshrepp

Á meðan ekkert gerist í virkjunarmálum er sveitarfélagið Árneshreppur að berjast fyrir tilverurétti sínum. Þar stefnir í að heilsársbúseta muni líða undir lok ef ekki verður farið í einhverjar aðgerðir. Það er sárt að hugsa til þess. Fólkið sem vaknar og sofnar í Árneshreppi allt árið um kring, ræktar þar land og búfénað, er fólkið sem þekkir sveitarfélagið sitt allra best. Þetta eru sérfræðingarnir í málum Árneshrepps. Það veit að Hvalárvirkjun er ekki að fara bjarga hreppnum, en veit líka að hún er hluti af lausninni. Hún er tækifæri fyrir Árneshrepp sem íbúar ætla að nýta til að efla svæðið. Þess vegna hefur sveitarstjórnarfólkið veitt virkjuninni brautargengi. Þó íbúar Árneshrepps séu fáir þá hljóta þeir að vera með öflugustu einstaklingum á landinu. Hverjir aðrir myndu standa teinréttir og klárir í næstu orrustu eftir aðfarir sl. árs? Tekist á við tilraun virkjunarandstæðinga til yfirtöku sveitarstjórnarkosninga, verið úthúðuð fyrir að veita framkvæmdaleyfi og staðið í opinberu orðaskaki við andstæðinga Hvalárvirkjunar sem virðast hafa úr meiri mannafla og peningum að spila úr en sveitarfélagið Árneshreppur. Íbúar Árneshrepps, eins og íbúar Vestfjarða, hafa margoft þurft að heyra frá virkjunarandstæðingum að Hvalárvirkjun muni ekkert gera fyrir íbúa Vestfjarða. Þetta hefur nú loksins verið hrakið þar sem staðreyndin er önnur. Hvalárvirkjun mun hafa jákvæð áhrif á afhendingaröryggi rafmagns um alla Vestfirði og stórefla atvinnulíf á svæðinu.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. júlí 2019.