Haraldur Benediktsson alþingismaður:
Þriðji orkupakkinn hefur engin áhrif á forræði íslenska ríkisins á náttúruauðlindum. Full yfirráð yfir þeim verða áfram hjá íslenskum stjórnvöldum. Um þetta er fjallað með skýrum hætti í EES-samningnum sjálfum.
Þrátt fyrir að þetta sé skýrt er því haldið fram af andstæðingum málsins að Ísland tapi forræði yfir orkuauðlindum – og þriðji orkupakkinn fjallar ekki einu sinni um það. Þessar staðhæfingar eru ekki rökstuddar og halda ekki. En til að draga úr áhyggjum efasemdarfólks gáfu framkvæmdastjóri orkumála hjá framkvæmdastjórn ESB og utanríkisráðherra Íslands út sameiginlega yfirlýsingu í mars sl. þar sem áréttað er að vegna sérstöðu Íslands sem einangraðs kerfis, hafi stór hluti ákvæða þriðja orkupakkans hvorki gildi né raunhæfa þýðingu hérlendis. Þá hafa nokkrir af færustu sérfræðingum landsins á þessu sviði fjallað um þetta og staðfest þennan skilning.
Nú eru liðin 16 ár síðan íslenski orkumarkaðurinn var markaðsvæddur með upptöku og innleiðingu á fyrsta orkupakkanum. Síðan 1993 hafa grunnreglur EES-samningsins um fjórfrelsið og ríkisstyrki gilt um íslenska raforkumarkaðinn og grunnreglur um samkeppnismál síðan 2003. Því hefur ekki fyrr verið haldið fram að með innleiðingunni höfum við afsalað okkur forræði yfir auðlindinni. Á því verður engin breyting nú.
Mikið hefur verið rætt um sæstreng. Ákvörðunarvald um raforkustrengi milli Íslands og innri raforkumarkaðar ESB liggur alfarið hjá íslenskum stjórnvöldum. Það er alveg ljóst að hann verður ekki lagður án aðkomu Alþingis og Ísland verður áfram án sæstrengs nema Alþingi ákveði annað. Að halda öðru fram er fjarstæða. Ákvörðun um lagningu sæstrengs, sem meðal annars myndi liggja um landgrunn í landhelgi Íslands, er háð fjölmörgum atriðum sem eru á forræði ríkja og falla utan gildissviðs EES-samningsins. Þannig er hvers kyns hagnýting landgrunnsins háð fullveldisrétti íslenska ríkisins. Þá verður með þriðja orkupakkanum ekkert ákvörðunarvald gagnvart EFTA-ríkjunum flutt til ACER (stofnunar ESB). Valdheimildir ACER ná að auki ekki til ákvarðana um hvort sæstrengur verður lagður.
Það er mikilvægt að við nálgumst umræðuna á yfirvegðan hátt með staðreyndir að vopni. Nú er málið til meðferðar hjá Alþingi. Þar verður málið skoðað heildsætt og farið yfir öll rök í því. Ef allir gera það hef ég góða sannfæringu fyrir því að áhyggjur einstakra manna af því að við töpum yfirráðum yfir orkuauðlindum séu óþarfar.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 18. apríl 2019.