Annar hlaðvarpsþáttur þingmanna

Í hlaðvarpinu „Áslaug og Óli Björn“ er farið yfir tækifærin í einkarekstri og muninn á því og einkavæðingu.

Um þáttinn: Einkarekstur, einkavæðing, ríkisrekstur.

Oft er þessu öllu ruglað saman, höfð eru endaskipti á hlutunum og orð fá nýja og villandi merkingu. Við fjöllum um muninn á einkarekstri og einkavæðingu. Förum yfir hvernig hægt er að samþætta ríkisrekstur og einkarekstur, látið allt vinna saman til að tryggja hagkvæma meðferð skattpeninganna okkar og góða þjónustu. Einkaaðilar sinna mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðisþjónustu og innan menntakerfisins. Við viljum nýta kosti einkaframtaksins en um leið tryggja öllum menntun og heilbrigðisþjónustu óháð fjárhag og búsetu.

Hægt er að hlusta á þættina í hlaðvarpsforritum (podcat app) í símum, á Spotify og iTunes. Eins má hlusta á þáttinn í tölvunni, sjá nánar hér.