Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
Sú umræða sem átti sér stað í upphafi þessa árs um fjárframlög til Hafrannsóknastofnunar var til þess fallin að varpa skýru ljósi á ýmsa veikleika varðandi það hvernig stofnunin hefur verið fjármögnuð undanfarin ár. Ber þar helst að nefna þá staðreynd að stofnunin hefur verið háð sértekjum sem fást af afla sem veiddur er umfram heimildir en þær tekjur hafa lækkað til muna á síðustu árum og eru grunnur þess niðurskurðar sem blasti við stofnuninni í upphafi þess árs. Samhliða því að tryggja að Hafrannsóknastofnun geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki með forsvaranlegum hætti á þessu ári hefur undanfarna mánuði verið unnið að breytingu á þessu fyrirkomulagi þannig að stofnunin verði til framtíðar fjármögnuð með öðrum og ábyrgari hætti. Markmið mitt er að Hafrannsóknastofnun verði ekki háð sveiflukenndum tekjustofnum með tilheyrandi óvissu fyrir kjarnastarfsemina.
Fyrrgreind umræða dró jafnframt fram hversu mikill einhugur ríkir um að við Íslendingar stundum öflugur hafrannsóknir enda eru þær forsenda sjálfbærrar og ábyrgrar nýtingar auðlinda hafsins. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er sérstaklega kveðið á um eflingu hafrannsókna og hafa þegar verið stigin markverð skref í þá veru. Þetta birtist meðal annars í auknum fjármunum til hafrannsókna í fjárlögum síðasta árs en þeir fjármunir nýttust m.a. til að fjármagna ráðningu þriggja sérfræðinga til að efla loðnurannsóknir. Einnig má nefna samhljóða ákvörðun Alþingis í sumar um að hafin verði smíði hafrannsóknaskips en sú ákvörðun markar tímamót í hafrannsóknum Íslendinga. Á þessu ári verða settar 300 milljónir í smíði skipsins og 3,2 milljarðar til viðbótar árin 2020 og 2021. Loks má nefna að Hafrannsóknastofnun mun síðar á þessu ári flytja í nýtt húsnæði í Hafnarfirði sem er sérhannað fyrir starfsemina auk þess sem starfsemin á höfuðborgarsvæðinu færist á einn stað.
Þrátt fyrir jákvæð skref í eflingu hafrannsókna á fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar er verkefninu hvergi nærri lokið. Við þurfum að halda áfram á þessari braut enda eru öflugar hafrannsóknir nauðsynleg undirstaða verðmætasköpunar í sjávarútvegi. Ábyrgð stjórnvalda er því mikil og undir þeirri ábyrgð verður staðið.
Greinin birtist í Fréttablaðinu 23. janúar 2019.