Mikið ósætti myndaðist milli minnihlutans í borginn og meirihlutans þegar fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til að forgangsraða fjármunum borgarinnar meira til skólamála og hinkra þá með önnur verkefni.
Halldór Halldórsson oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni segir að þegar nefnd voru dæmi um rekstrarliði sem mættu víkja eða slá á frest til að gera betur í skólamálum, hafi meirihlutinn ásakað minnihlutann að vera á móti þeim verkefnum.
Halldór segir ennfremur að þetta snúist einungis um forgangsröðun og þó allir kostirnir sem þarf að forgangsraða séu góðir, séu skólamál það nauðsynlegasta í samfélaginu og þurfi því að vera efst í forgangsröðinni.
„Mér fannst leiðinlegt að taka þátt í svona umræðu á þessum opna vettvangi sem borgarstjórnin er,“ segir Halldór sem sakar fulltrúa meirihlutans um að vera ómálefnalega. „Niðurstaðan í sjálfu sér að mínu mati er sú að meirihlutinn hefur ekki hugmyndir um hvernig á að taka á þessu,“ segir Halldór í samtali við mbl.is sem hefur áhyggjur af stöðu grunn- og leikskóla í borginni.