Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi 10. september 2016.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst fimmtudaginn 25. ágúst.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Opið alla virka daga kl. 9 til 16.
Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Suðvesturkjördæmi.
Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri, ella ógildist kjörseðillinn. Kosið skal með því að setja tölustaf frá einum og upp í sex fyrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi endanlegan framboðslista.
Nánari upplýsingar um prófkjörið verða birtar þegar nær dregur prófkjörsdeginum 10. september.