Heilbrigði er okkar mál

Landssamband sjálfstæðiskvenna gengst fyrir fundarröð um heilbrigðismál. Þar verður fjallað um helstu málaflokka, stöðu heilbrigðismála og horft til framtíðar. Sjá nánar hér.

Hvernig viljum við að heilbrigðiskerfi okkar sé og hvernig á það virka? Hvernig gerum við það sem mest aðgengilegt fyrir sjúklinga með það að leiðarljósi að það veiti bestu þjónustuna?

Annar fundurinn af fjórum fer fram þriðjudagskvöldið 23. október kl. 20:00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.

90 mínútur um geðheilbrigðismál.

Erindi flytja: Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, alþingismaður og Nanna Briem, geðlæknir

Allir velkomnir.