Súpufundur um lífeyrismál

Félag eldri sjálfstæðismanna á Suðurnesjum býður þig velkominn á súpufund um lífeyrismál þriðjudaginn 7. mars, í Grófinni 8 kl. 11:30.

Boðið verður upp á dýrindis súpu, brauð og kaffi. Gestirnir okkar að sinni eru Gunnar Baldvinsson framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og Guðrún Hafsteinsdóttir 1. þingmaður Suðurkjördæmis. Gunnar mun ræða lífeyrismálin almennt og Guðrún fer yfir pólitíska umhverfið.

Það var frábær mæting á síðasta súpufund og við búumst við enn betri mætingu núna.

Hlökkum til þess að sjá þig.

Stjórnin