Hádegisfundur Samtaka eldri sjálfstæðismanna

Guðmar Guðmundsson, fjármálastjóri Tryggingastofnunar, verður gestur á hádegisfundi Samtaka eldri sjálfstæðismanna (SES) miðvikudaginn 1. mars kl. 12:00 að hádegi í Valhöll, Háaleitisbraut 1.

Fundurinn er opinn öllum.

Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1.100 kr.

Vegna framkvæmda á lóð Valhallar er fólk hvatt til að sameinast í bíla og leggja í nágrenninu.

Stjórn Samtaka eldri sjálfstæðismanna.