Bæjarmálafundur á Bryggjunni á Akureyri 17. apríl

Ágætu félagar í Sjálfstæðisflokknum á Akureyri!

Boðað er til bæjarmálafundar á veitingastaðnum Bryggjunni mánudaginn 17. apríl kl. 17.30 þar sem málefni bæjarstjórnar og bæjarstjórnarfundar 18. apríl verða rædd.

Á dagskrá bæjarmálafundarins verða eftirtalin mál til umræðu:

  1. Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2022 – fyrri umræða
  2. Háskólasvæði – uppbygging
  3. Reglur Akureyrarbæjar um fjárhagsaðstoð og rafræna vöktun
  4. Listasafnið á Akureyri – breyting á samþykkt
  5. Reglur um lokun gatna
  6. Nýtt leikskólahúsnæði
  7. Önnur mál

Fundarstjóri verður Heimir Örn Árnason

Félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt, þannig höfum við áhrif.

Kveðjur bestar!
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins