Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar verður haldinn á Múlabergi, Hafnarstræti 87-89, fimmtudaginn 23. febrúar nk. kl. 19:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Sérstakur gestur fundarins verður Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins

Dagskrá fundarins er eftirfarandi, samkvæmt lögum Sjálfstæðisfélags Akureyrar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningsskil – (Stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar hefur falið fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri umsjón með reikningum félagsins sem heimild er fyrir skv. 13. gr. laga Sjálfstæðisfélags Akureyrar)
3. Ákvörðun árgjalds
4. Lagabreytingar – (engin tillaga á dagskrá)
5. Kosning formanns og stjórnar
6. Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.
7. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Norðausturkjördæmis
8. Önnur mál

Framboð skal tilkynna til formanns Sjálfstæðisfélags Akureyrar