Aðalfundur fulltrúaráðsins á Akureyri

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn á Múlabergi, Hafnarstræti 87-89, fimmtudaginn 23. febrúar nk. kl. 20:15. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Sérstakur gestur fundarins verður Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins

Dagskrá fundarins er eftirfarandi, samkvæmt lögum fulltrúaráðsins:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningsskil
  3. Kjör stjórnar
  4. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
  5. Kjör fulltrúa í kjördæmisráð
  6. Lagabreytingar (engin tillaga á dagskrá)
  7. Önnur mál

Framboð skal tilkynna til formanns fulltrúaráðsins

 

F.h. stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
Ásgeir Örn Blöndal, formaður