Laugardagsfundur í Kaupangi – Gestur fundarins Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri

Laugardaginn 27. október, ætlar stjórn Sjálfstæðisfélagsins á Akureyri að blása til laugardagsfundar í Kaupangi klukkan 11-12.

Við ætlum að eiga saman létt morgunspjall við bæjarstjórann okkar.  Setjast niður með kaffibollann og fræðast eitthvað um Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra og vita hvernig henni líst á starfið og framtíð bæjarins okkar.

Hittumst í Kaupangi og eigum góða stund saman.

Stjórnar Sjálfstæðisfélagsins á Akureyri