Hittu þingflokkinn í Vík í Mýrdal

Miðvikudagurinn 14. febrúar kl. 8:30 verður þingflokkur Sjálfstæðisflokksins með morgunfund í Ströndinni, Víkurskála.  Þar gefst fólki einstakt tækifæri til að hitta alla þingmenn flokksins og ræða það sem skiptir máli.

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar næstu vikur vítt og breytt um landið í öllum landsfjórðungum.

Hittumst á heimavelli. Allir hjartanlega velkomnir.