Fundur LS um lífstílssjúkdóma, forvarnir og lýðheilsu

Landssamband sjálfstæðiskvenna gengst fyrir fundarröð um heilbrigðismál. Þar verður fjallað um helstu málaflokka, stöðu heilbrigðismála og horft til framtíðar. Sjá nánar hér.

Hvernig viljum við að heilbrigðiskerfi okkar sé og hvernig á það virka? Hvernig gerum við það sem mest aðgengilegt fyrir sjúklinga með það að leiðarljósi að það veiti bestu þjónustuna?

Þriðji fundurinn af fjórum fer fram þriðjudagskvöldið 6. nóvember kl. 20:00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.

Lífstílstengdir sjúkdómar eru vaxandi vandamál meðal íslensku þjóðarinnar. Sjúkdómar á borð vð offitu, sykursýki 2 og hjartasjúkdóma valda um 86% dauðsfalla í Evrópu. Við ræðum mikilvægi forvarna og hvernig má efla lýðheilsu almennt öllum til bóta.

Framsögumenn verða Tryggvi Þorgeirsson, læknir og stofnandi Sidekick Health og Kristín Heimisdóttir, tannlæknir, lektor við HÍ og stjórnarformaður Lýðheilsusjóðs. Að framsögum loknum verður opnað fyrir spurningar.

Fundarstjóri er Kristín Traustadóttir, viðskiptafræðingur og stjórnarkona í LS.

Allir velkomnir.