Bjarni Benediktsson á fundi um: Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið

Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið verður til umfjöllunar á opnum fundi með Bjarna Benediktssyni formanni flokksins í Valhöll laugardaginn 19. janúar kl. 11.00. Efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd Sjálfstæðisflokksins standa fyrir fundinum.

Starfshópur á vegum ríkisstjórnarinnar skilaði hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið og hefur fjármálaráðherrann óskað eftir því að efnt verði til umræðu á Alþingi um efni skýrslunnar í upphafi vorþings.

Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins og formaður starfshópsins mun fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins mun fjalla um áherslur þeirrar vinnu sem framundan er í framhaldi af niðurstöðum skýrslunnar.

Fundarstjóri: Sirrý Hallgrímsdóttir formaður fjárlaganefndar Sjálfstæðisflokksins