D-listinn í meirihlutasamstarfi á Akureyri

Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks, L-lista og Miðflokks í bæjarstjórn Akureyrar kjörtímabilið 2022-2026 var kynntur á kaffihúsinu LYST í Lystigarðinum á Akureyri fyrir nokkrum dögum. Í samningi framboðanna kemur fram að meðal annars sé stefnt að því að stórauka lóðaframboð, komið verður á laggirnar lýðheilsustyrk fyrir tekjulágt og eignaminna eldra fólk og dregið úr kostnaðarþáttöku foreldra og forráðamanna í leik- og grunnskólum svo dæmi séu nefnd.

Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, verður forseti bæjarstjórnar og Lára Halldóra Eiríksdóttir, bæjarfulltrúi, verður formaður SSNE.

Formennska í ráðum og stjórnum verður eftirfarandi:

  • Forseti bæjarstjórnar – Sjálfstæðisflokkurinn
  • Formaður bæjarráðs – L-listinn
  • Fræðslu- og lýðheilsuráð – Sjálfstæðisflokkurinn
  • Skipulagsráð – L-listinn
  • Umhverfis- og mannvirkjaráð – L-listinn
  • Velferðarráð – L-listinn
  • Formennska í stjórn SSNE – Sjálfstæðisflokkur
  • Formennska í stjórn Norðurorku – Miðflokkurinn
  • Formennska í stjórn Hafnarsamlags Norðurlands – Miðflokkurinn