Forsendurnar eru brostnar

„Það segir skýrum stöfum í lögunum að engum opinberum sóttvarnaráðstöfunum megi halda úti nema brýna nauðsyn beri til og þeim beri að aflétta samkvæmt lögum eins fljótt og verða má,“ sagði Bjarni Benedktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra í Kastljósviðtali síðastliðinn mánudag.

Hann segir ljóst að forsendur hertra samkomutakmarkana séu brostnar. Gripið hafi verið til hertra aðgerða þar sem talið var að fjöldi smitaðrar myndi valda álagi á spítalann en þróunin nú mun jákvæðari en fyrri spálíkön gerðu ráð fyrir.

Bjarni segist hafa fullan skilning á þeim skilaboðum sóttvarnalæknis að fara varlega í afléttingar.

„Það er mjög mikið undir, það eru beinlínis líf undir og heilsa. Álagið og ástandið á spítalanum er líka undir í þessu, ég skil það, en við megum aldrei snúa röksemdarfærslunni í þessu máli á hvolf,“ sagði Bjarni.

„Ég er að benda á það að samkvæmt lögunum þá ber ráðherranum að taka tillit til fleiri þátta heldur en það sem sóttvarnalæknir týnir til, það er beinlínis lagaskylda til ráðherrans,“ sagði Bjarni og að við mættum ekki ganga svo langt að framselja vald lýðræðislegra kjörinna fulltrúa, í þessu tilviki heilbrgiðisráðherra eða jafnvel þingmanna til sérfærðinga.

Hann sagði að það hefði verið farsælt að fylgja tillögum sóttvarnalæknis í meginatriðum en þegar forsendurnar séu brostnar þurfi að draga ráðstafanir til baka.

„Ég lít á það sem skyldu mína að benda á það sem segir í lögunum. Ég skoða rökin og við verðum að muna að það er algjört neyðarúrræði að grípa svona inn í líf fólks og segja; nú mega bara tíu koma saman, þessir aðilar mega ekki hafa opið nema svo og svo lengi. Þetta er algjört neyðarúrræði, það er algjörlega skýrt í lögunum. Það ber að draga slíkar ráðstafanir til baka þegar forsendurnar eru ekki til staðar. Þegar við skoðum þessar síðustu ráðstafanir, þá er það mín skoðun á grundvelli talnanna sem liggja núna á borðinu, að forsendurnar eru brostnar, þetta mun ég segja, en svo ræður ráðherrann hvað hann gerir,“ sagði hann.

Hann sagðist viss um að við yrðum áfram farsæl í að koma okkur út úr ástandinu. „Við erum að stefna í átt að frelsinu að nýju, það er það sem er jákvætt í stöðunni í dag,“ sagði hann.

Hér má nálgast Kastljósþáttinn með viðtalinu við Bjarna.