Opnir viðtalstímar varaformanns Sjálfstæðisflokksins

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, mun næstu vikurnar bjóða upp á opna viðtalstíma í Valhöll.

Viðtalstímarnir verða eftirtalda daga:

  • Mánudaginn 24. Október kl. 10:00
  • Mánudaginn 31. Október kl. 10:00

Mikilvægt er að bóka tíma með því að senda póst á ingahrefna@utn.is

Viðtalstímarnir fara fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1,  en jafnframt er hægt að óska eftir því að þeir verði símleiðis eða í gegnum fjarfundabúnað og verður eftir fremsta megni reynt að verða við því.