Opinn fundur með borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins

Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík boðar til opins fundar með borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins miðvikudagskvöldið 27. febrúar næstkomandi.

Fundurinn fer fram í Valhöll og hefst klukkan 20:00.

Í upphafi fundar munu borgarfulltrúar flokksins ganga á milli borða í sal og eiga einlæg samtöl við fundargesti. Í kjölfarið taka síðan við pallborðsumræður þar sem borgarfulltrúar munu sitja fyrir svörum.

Allir velkomnir og heitt kaffi á könnunni.

Með kveðju,

stjórn Varðar.