Aðalfundur fulltrúaráðsins í Kópavogi

Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi fer fram þann 26. febrúar nk. að Hlíðarsmára 19 og hefst kl. 20:00.

Framboð til formanns og til stjórnar þurfa að berast á netfangið xdkop@xdkop.is minnst fjórum dögum fyrir auglýstan aðalfundardag samkvæmt 35gr. d liðar skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins.

Vinsamlegast athugið að Málfundafélagið Baldur og Eddurnar, félag Sjálfstæðiskvenna í Kópavogi, hafa ekki kjörgengi á aðalfundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélagana í Kópavogi.

Staður og dagsetning: Miðvikudagurinn 26.febrúar, kl: 20:00, Hlíðasmára 19. 201 Kópavogi

Fundarefni:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningar fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
  3. Lagabreytingar
  4. Stjórnarkjör
  5. Kosning formanns
  6. Kosning aðal- og varamanna í stjórn
  7. Kosning formanns fjáröflunarnefndar
  8. Kosning endurskoðenda
  9. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð
  10. Kjör fulltrúa í stjórn Þorra hf.
  11. Önnur mál

 

Stjórnin.